Samskiptalykillinn

Foreldrahlutverkið býður upp á ótal gleðistundir en líka áskoranir, sérstaklega þegar kemur að samskiptum við börnin okkar. Oft finnum við fyrir úrræðaleysi þegar fyrirmæli ná ekki í gegn eða þegar tilfinningar fara úr böndunum. Samskiptalykillinn er hagnýtt og kærleiksríkt verkfæri sem hjálpar foreldrum að byggja upp dýpri tengsl, setja skýr mörk og mæta börnum af virðingu og samkennd. Hér á eftir eru hagnýt ráð sem auðvelda samskiptin og skila meiri ró og samvinnu á heimilinu.

1. Tilfinningastuðningur, samkennd og traust

  • Mættu tilfinningum af samkennd: Að nefna og viðurkenna tilfinningar hjálpar börnum að finna sig séð, róar og auðveldar þeim að læra af aðstæðunum. Frekar en: „Róaðu þig!“ / „Hættu að gráta!“ [1] Segðu frekar: „Ég sé að þér líður illa“ eða „Ég sé að þú ert í miklu uppnámi.“
  • Aðskildu tilfinningar og hegðun: Sýndu tilfinningum barnsins fullan skilning. Allar tilfinningar eru leyfilegar, en ekki öll hegðun. Dæmi: „Það er í lagi að vera reiður, en það er ekki í lagi að slá.“ [1][2]
  • Sýndu traust og trú á getu: Sýndu í verki að þú trúir því að barnið geti leyst úr sínum málum og lært af mistökum í stað þess að grípa alltaf inn í. [1]

2. Mörk, strúktúr og eftirfylgni

  • Settu skýr mörk: Að vera ákveðinn þarf ekki að þýða að vera leiðinlegur eða kaldur.[1] Börn upplifa öryggi þegar mörk eru skýr og komið á framfæri af hlýju og virðingu.[2][3] Dæmi: „Ég get ekki leyft þér að meiða aðra“ frekar en „Hættu þessu!“ [1]
  • Haltu mörkunum með yfirvegun: Endurtaktu mörkin og fylgdu þeim eftir af rólegu öryggi án þess að verða reiður. Segðu aðeins það sem þú meinar og stattu við það. [1]
  • Framkvæmdu án orða: Notaðu athafnir og líkamstjáningu í stað þess að kalla eða skipa fyrir; gakktu til barnsins, náðu augnsambandi eða leiddu það vingjarnlega á réttan stað [1]
  • Veittu skýran strúktúr og útskýringar: Útskýrðu ástæður reglna í stað þess að beita einhliða skipunum og veittu einfaldar leiðbeiningar um hvers er vænst.[2][3] Það hjálpar barninu að skilja tilganginn og taka góðar ákvarðanir.[2]
  • Nýttu náttúrulegar afleiðingar: Leyfðu afleiðingum að kenna barninu án þess að bæta við ásökunum eða fyrirlestrum. Dæmi: Ef barnið fer ekki í vettlinga verður því kalt. [1]

3. Tenging á undan leiðsögn

  • Tengstu áður en þú stýrir: Áður en þú gefur fyrirmæli eða leiðréttir skaltu staldra við og sýna skilning á því hvað barnið er að gera eða upplifa. Börn eru miklu líklegri til að hlusta þegar þau finna fyrir öryggi og að þau tilheyri. Dæmi: „Vá, þú ert að byggja eitthvað rosalega flott! En nú er kominn tími til að taka til.“ [1]
  • Talaðu af gæsku og ákveðni í senn: Paraðu saman virðingu við barnið (gæsku) og ákveðni. Dæmi: „Ég elska þig, og svarið er nei.“[1]
  • Gæðatengsl og hlýja: Mættu barninu af ástúð, nærgætni og veittu því tilfinningalegt öryggi. Börn hlusta og læra best þegar þeim líður vel og þau finna fyrir öryggi í samskiptum. [2][3]

4. Nærvera, hlustun og líkamstjáning

  • Náðu athygli þeirra áður en þú talar: Ekki kalla eða öskra yfir allt herbergið. Farðu nær barninu, beygðu þig niður í þeirra hæð og segðu nafnið þeirra blíðlega. Náðu augnsambandi ef mögulegt er. Dæmi: „Emilía, mig langar að segja þér nokkuð.“ [1]
  • Gættu að raddtóni og líkamsstöðu: Raddtónn og líkamstjáning bera oft sterkari skilaboð en orðin sjálf; að fara niður á stig barnsins og tala af hlýju eykur samstarf til muna. [1]
  • Virk hlustun og virðing (Active Listening & Respect): Stoppaðu það sem þú ert að gera, farðu niður í augnhæð barnsins og veittu því alla þína athygli án þess að grípa fram í, dæma eða verja þig. Taktu þér tíma til að hlusta á sjónarmið þess til að auka traust og samstarfsvilja. [1][3]

5. Stutt og skýr skilaboð

  • Notaðu færri orð: Langar útskýringar ná oft ekki í gegn. Hafðu skilaboðin stutt og hnitmiðuð.[1][2] Í staðinn fyrir: „Hversu oft þarf ég að segja þér að fara í skóna?“ Prófaðu frekar: „Skóna á, takk.“[1]
  • Notaðu aðeins eitt orð: Í stað þess að halda langar ræður er oft nóg að nota eitt orð sem vingjarnlega áminningu (til dæmis „skór“, „tannbursti“ eða „diskur“). [1]
  • Notaðu hljóðlát merki: Búðu til leynileg eða samþykkt merki ásamt barninu (eins og að benda á úrið eða nota handahreyfingu) til að minna á verk án þess að nota orð.[1]

6. Valkostir, samvinna og þátttaka

  • Bjóddu valkosti innan skýrra ramma: Þegar börn upplifa að þau hafi stjórn dregur það úr mótþróa og eflir sjálfstæði og samstarfsvilja. Gefðu tvo kosti sem báðir eru samþykkjanlegir og endaðu á „þú ræður“. Í staðinn fyrir: „Gerðu eins og ég segi!“ eða „Gerðu þetta strax!“ Prófaðu frekar: „Viltu bursta tennurnar á undan eða eftir að við lesum bókina?“ eða „Viltu fara í bleiku eða bláu náttfötin? Þú ræður.“ [1]
  • Hafðu börnin með í ráðum og gerðu samninga: Leyfðu barninu að taka þátt í ákvörðunum og mótun reglna á rólegum stundum eftir því sem þroski þess leyfir. Börn eru líklegri til að fylgja reglum sem þau hafa átt þátt í að skapa. [1][2]

7. Færni og lausnaleit

  • Kenna færni og leiðbeina: Í stað þess að stöðva aðeins hegðunina eða segja sífellt „ekki gera þetta“, skal segja barninu hvað á að gera. Þetta byggir upp sjálfsstjórn og félagsfærni með tímanum. [1][2] Í staðinn fyrir: „Svona gerir maður þetta ekki!“, „Ekki vera svona harðhent(ur)!“ eða „Ekki rífa af honum!“ Prófaðu frekar: „Þú mátt reyna aftur“, „Gæludýr þurfa mildar hendur“ eða „Prófaðu að spyrja bróður þinn hvort þú megir fá að prófa.“ [1]
  • Spyrðu forvitnisspurninga í stað skipana: Hjálpaðu barninu að hugsa sjálft með því að spyrja opinna spurninga („Hvað þurfum við að gera næst?“) í stað þess að dæla út skipunum.[1]
  • Einblíndu á uppbyggilegar lausnir án skammar: Beindu samtalinu að því að finna gagnlegar lausnir saman í stað þess að ásaka, refsa eða beita niðurlægingu sem skaðar sjálfsmynd og eyðir trausti.[1][2]

8. Lærdómur af mistökum, yfirvegun og léttleiki

  • Ræddu málin þegar allir eru rólegir: Forðastu að reyna að leysa árekstra eða halda fyrirlestra þegar þú eða barnið eruð í uppnámi, heldur taktu pásu og ræddu hlutina af yfirvegun síðar. [1]
  • Litið á mistök sem tækifæri til að læra: Horfðu á mistök eða erfiðleika sem eðlilegan hluta af lærdómsferlinu frekar en eitthvað sem þarf að refsa fyrir.[1][2]
  • Viðurkenndu þín eigin mistök: Sýndu fordæmi með því að viðurkenna eigin mistök, biðjast afsökunar, sættast og vinna svo að lausn. [1]
  • Vertu jákvæð fyrirmynd: Sýndu æskilega hegðun, virðingu og lausnaleit í verki, þar sem börn læra mikið af því að fylgjast með viðbrögðum fullorðinna.[2][3]
  • Notaðu húmor og leikgleði : Leikur, léttleiki og húmor geta rofið mótspyrnu og gert erfið verkefni skemmtileg.[1]

Góð samskipti við börn snúast ekki um fullkomnun heldur um tengingu, sveigjanleika og þolinmæði. Þegar við veljum að mæta börnum okkar af hlýju, hlusta af virðingu og setja skýr en mild mörk, byggjum við upp traust sem endist til æviloka. Enginn foreldri gerir allt rétt í hvert einasta skipti, og það er allt í lagi. Það mikilvægasta er að halda áfram að læra saman, sýna okkur sjálfum og börnunum gæsku og muna að litlu skrefin geta skipt sköpum

Viltu styðja barnið þitt við að tjá tilfinningar sínar?

Að kenna börnum á tilfinningar sínar skapar betri samskipti og rólegra heimili. Tilfinningaspjöld eru einföld og skemmtileg leið til að opna spjallið í hversdeginum og styrkja tilfinningalæsið.

Verð:
1.490 kr.

Heimildir

  1. Nelsen, J. (e.d.). 52 Positive Discipline parenting tools in 52 weeks. Positive Discipline. Sótt af https://www.positivediscipline.com/articles/52-positive-discipline-parenting-tools-52-weeks/
  2. Durrant, J. E. (2010). Positive discipline in everyday teaching: Guidelines for educators. Save the Children. https://seap.savethechildren.se
  3. Seay, A., Freysteinson, W. M., & McFarlane, J. (2014). Positive parenting. Nursing Forum, 49(3), 200–208. https://doi.org/10.1111/nuf.12093

Similar Posts

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *